Quantcast
Channel: Fólk – Nútíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880

Yfirlýsing frá lögreglunni, „sumt“ í umfjöllun fjölmiðla ekki í samræmi við rannsóknargögn

$
0
0

Lögreglan hefur birt yfirlýsingu á Facebook vegna rannsóknar á tveimur nauðgunum í tengslum við skólaskemmtanir í Háskólanum í Reykjavík.

Lögreglan segir að málin tvö séu í algjörum forgangi hjá kynferðisbrotadeild embættisins og að allt kapp sé lagt á að upplýsa þau. Þá kemur fram að sumt í umfjöllun fjölmiðla sé ekki í samræmi við fyrirliggjandi rannsóknargögn lögreglu.

Ekki kemur fram hvað er rangt í umfjöllun fjölmiðla.

„Rannsókn þeirra miðar vel, en eðli málsins samkvæmt getur lögreglan hins vegar ekki upplýst um málsatvik, m.a. með tilliti til meintra þolenda. Nauðsynlegt er þó að taka fram að sumt í umfjöllun fjölmiðla er ekki í samræmi við fyrirliggjandi rannsóknargögn lögreglu,“ segir í yfirlýsingunni.

Lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að krefjast ekki gæsluvarðhalds yfir mönnunum. Í yfirlýsingunni kemur fram að lögreglan hafi fundið fyrir mjög sterkum viðbrögðum í samfélaginu í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla um áðurnefnd mál.

Sjá einnig: Við skoðuðum lögin um gæsluvarðhald og þau eru skýr

„Og hafa henni borist fjölmargar fyrirspurnir áhyggjufullra borgara vegna þessa, ekki síst á samfélagsmiðlum embættisins. Það er skiljanlegt og undirstrikar mikilvægi þess að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldi stöðugt áfram að vinna að grundvallarmarkmiði sínu, sem er að tryggja öryggi og öryggistilfinningu þeirra sem búa, starfa og dvelja í umdæmi hennar.“

Yfirlýsinguna má sjá hér fyrir neðan.

Vegna frétta um rannsóknir tveggja kynferðisbrota, sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum í dag og undanfarna dag, vill…

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Monday, November 9, 2015

 
Source: Nútíminn

Þessi frétt Yfirlýsing frá lögreglunni, „sumt“ í umfjöllun fjölmiðla ekki í samræmi við rannsóknargögn birtist fyrst á Nútíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880