
Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason fékk logandi blys í sig fyrir leik Panathinaikos og Olympiakos í Grikklandi í kvöld. Stuðningsmenn liðanna lifa sig greinilega inn í leikinn, kannski aðeins of mikið, miðað við ákafann.
Sjáðu myndbandið af atvikinu hér fyrir neðan en það var að sjálfsögðu Fótbolti.net sem greindi frá málinu.
Alfreð er búinn að skora í tveimur leikjum í röð með íslenska landsliðinu en hefur ekki átt fast sæti hjá Olympiakos á tímabilinu
Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
Source: Nútíminn
Þessi frétt Brjálaðir stuðningsmenn hentu blysi í Alfreð Finnbogason, sjáðu myndbandið birtist fyrst á Nútíminn.