
Mikla athygli vakti þegar Langholtsskóli lagði af heimsóknir nemenda í Langholtskirkju fyrir jólin en slíkar ferðir hafa verið hefð í skólanum um langa hríð.
Í bréfi frá skólastjóra kom fram að ástæða þessarar breytingar sé sú að ekki geti allir tekið þátt í kirkjuferðinni þar sem margir nemendur séu ekki í Þjóðkirkjunni.
Sjá einnig: Langholtsskóli hættir kirkjuferðum, hér eru 17 bestu ummælin frá virkum í athugasemdum
Á vef skólans kemur fram að nemendur hafi farið nýja leið í ár eins og má sjá í yndislegu myndbandi hér fyrir ofan. Nemendur mynduðu friðarmerkið og sungu texta Þórarins Eldjárns við lagið Imagine eftir John Lennon.
Kennarar höfðu áður rætt við börnin um mikilvægi friðar í heiminum. Þetta var friðsöm og notaleg stund sem við áttum saman.
Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.
Þessi frétt Nemendur í Langholtsskóla áttu friðsama stund í staðinn fyrir að fara í kirkju birtist fyrst á Nútíminn.