Quantcast
Channel: Fólk – Nútíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880

Hádegisumræður með aðalframkvæmdastjóra Amnesty International Kumi Naidoo

$
0
0

Næstkomandi mánudag munu fara fram hádegisumræður með aðalframkvæmdastjóra Amnesty International, Kumi Naidoo, á skrifstofu Íslandsdeildar Amnesty International en hann er staddur hér á landi um þessar mundir. Ræddar verða helstu áskoranir í mannréttindabaráttunni fyrir alla.

Þess má geta að Kumi Naidoo er reynslu­mikill aðgerðasinni og hefur lengi starfað í þágu mann­rétt­inda í heimalandi sínu, Suður-Afríku. Hann gegndi starfi aðal­fram­kvæmda­stjóra Green­peace Internati­onal áður en hann tók við starfi aðalframkvæmdastjóri Amnesty International í desember árið 2017.

Íslandsdeild Amnesty International býður alla hjartanlega velkomna í hádegisumræðurnar næstkomandi mánudag kl. 13:00, í Þingholtsstræti 27, 3. hæð.

 
Source: Nútíminn

Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880